Þú ert hér

  • 01.07.2010

    Sumarlokun Félags heyrnarlausra

    Félag heyrnarlausra verður lokað vegna sumarleyfa frá 1. júli - 4. ágúst 2010.  Skrifstofan opnar aftur á hefðbundnum tíma 5. ágúst nk.
  • 30.06.2010

    Dagskrá Kirkju heyrnarlausra í júllí

    Dagskrá fyrir Kirkju heyrnarlausra fyrir júlí mánuð hefur nú verið sett á netið.
  • 30.06.2010

    Nýjasta Döffblaðið komið á netið

    Fyrsta tölublað Döffblaðsins árið 2010 er komið út. Hægt er að nálgast blaðið á heimasíðu félagsins í pdf formi.
  • 30.06.2010

    Fréttatilkynning vegna sanngirnisbóta:

    Dómsmála- og mannréttindaráðherra hefur falið sýslumanninum á Siglufirði að annast þau verkefni sem sýslumanni eru falin samkvæmt lögum um sanngirnisbætur fyrir misgjörðir á stofnunum eða heimilum sem falla undir lög nr. 26/2007.
  • 29.06.2010

    Upplýsingar um sanngirnisbætur

    Alþingi samþykkti nýlega frumvarp um sanngirnisbætur. Nefnd verður skipuð sem ákveður hvernig bætur skulu greiddar út.
  • 28.06.2010

    Fyrirlestur um táknmálsskilning heyrnarlausra

    Miðvikudaginn 30. júní kl.10:00-12:00 heldur Isabel de los Reyes Rodríguez Ortiz, Sálfræðideild Háskólans í Sevilla á Spáni, fyrirlestur sem nefnist Sign Language Comprehension in Deaf People eða Táknmálsskilningur heyrnarlausra. Fyrirlesturinn er haldinn á vegum spænskudeildar Háskóla Íslands og Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum og fer fram í Gimli, stofu 102.
  • 28.06.2010

    Döffmót 2010

    Ert þú búinn að skrá í Döffmótið?  Döff- og fjölskyldumótið í sumar verður haldið 2. til 4. júlí næstkomandi í Þjórsárveri sem er ekki langt frá Selfossi og er í klukkutíma akstri frá Reykjavík.
  • 25.06.2010

    Söfnun gagna um íslenska táknmálið

    Rannsóknir á íslenska táknmálinu eru mikilvægar fyrir marga hluta sakir. Rannsóknir eru undirstaða allrar kennslu og námsefnisgerðar í íslenska táknmálinu en þær eru líka nauðsynlegar ef móta á málstefnu eða segja fyrir um hvernig nota á málið.
  • 25.06.2010

    Döff í Armeníu fá að taka bílpróf

    Ríkisstjórn í Armeníu hafa samþykkt tillögu um að leyfa heyrnarlausum og heyrnarskertum að taka bílpróf.    Það er óréttlæti að banna Döff að aka bíl, sem er ennþá á nokkrum stöðum.  Fleiri og fleiri lönd eru farnir að leyfa Döff að hafa bílpróf. 
  • 25.06.2010

    Fréttabréf WFD á netinu

    Fréttabréf Alheimssamtaka fyrir júnímánuð er komin út. 
  • 25.06.2010

    Döfffélag stofnað á Grænlandi

    Þann 27. apríl 2010 var sögulegur dagur fyrir grænlendinga.  Því fyrsta félag heyrnarlausra var stofnað í Grænlandi. Félagið heitir SIUTEQ sem þýðir eyra á grænlensku. 
  • 25.06.2010

    Skýrsla frá Heimsþing heyrnarlausra 2007 komin út

    Sumarið 2007 var Heimsþing heyrnarlausra haldin í Madrið á Spáni.   Mannréttindi heyrnarlausra var veigamesti þáttur heijmsþingsins.Þingið var haldið undir kjörorðunum: "Táknmál er réttindamál". 
  • 21.06.2010

    Nefnd um lagalega stöðu íslenskrar tungu og íslensks táknmáls

    Nýlega hefur nefnd um lagalega stöðu íslenskrar máls og íslensk táknmál skilað skýrslu. Fyrir einu ári var nefndin skipuð. Hlutverk nefndarinnar er m.a. að koma með tillögur um að tryggja lagalega stöðu íslensks táknmáls í íslensku samfélagi. Mikið er talað um táknmál í 10. kafla skýrslunnar og var sett fram tillögur sem hægt er að tryggja lagalega stöðu þess.
  • 18.06.2010

    Vorhappdrætti heyrnarlausra

    Dregið hefur verið í Vorhappdrætti Félags heyrnarlausra. Hægt er að sjá vinningsnúmer hér.
  • 16.06.2010

    Salur til leigu

    Félag heyrnarlausra er með glæsilegan sal til leigu ef þig vantar sal fyrir veislu eða annað tilefni. Salurinn rúmar allt að 60 gesti til borðs og er útbúinn eldhúsi til upphitunar og undirbúnings á mat og öðrum veitingum. Salurinn hentar fyrir hverskyns veislur, fundi, móttökur, ráðstefnur o.fl.
  • 15.06.2010

    Leiðbeiningar um viðbúnað vegna öskufalls

    Táknsmiðjan efh. hefur sett upp leiðbeiningar á táknmáli um viðbúnað fyrir, eftir og meðan á öskufalli stendur. 
  • 15.06.2010

    Frá Íþróttafélagi heyrnarlausra

    Vegna lítillar mætingar á leiki HM í fótbolta í Félagi heyrnarlausra hefur verið  ákveðið að hafa FH opið fyrir félagsmenn aðeins á laugardögum kl. 18.30.
  • 10.06.2010

    Ennþá er hægt að skrá sig á menningarhátíð heyrnarlausra

    Norræn menningarhátíð heyrnarlausra verður haldin í Stokkhólmi dagana 28. júní til 3. júlí.  Ennþá er hægt að skrá sig á menningarhátíðina í síðasta lagi 14. júní.  
  • 10.06.2010

    Ályktun aðalstjórnar ÖBÍ

    Framkvæmdastjórn Öryrkjabandalags Íslands mótmælir kröftuglega fyrirhuguðum skerðingum á þjónustu við fatlaða og lífsafkomu öryrkja.
  • 09.06.2010

    Styrkur til meistaranema í íslenskri málfræði við Háskóla Íslands

    Kristín Lena Þorvaldsdóttir, meistaranemi í íslenskri málfræði, hefur hlotið viðurkenningu úr Minningarsjóði dr. phil. Jóns Jóhannessonar. Styrkurinn nemur 200.000 þúsund krónum.
  • 08.06.2010

    Laus vika í sumarhús félagsins

    Ein vika er laus í sumarhús félagsins.  
  • 07.06.2010

    Konukvöld í Félagi heyrnarlausra

    Sigríður Arnarsdóttir, Sirrý kmeur í heimsókn og verður með fyrirlestur fyrir Döff konur, miðvikudaginn 16. júní 2010 í Félagi heyrnarlausra á Grensásvegi 50.  Námskeiðið hefst kl. 20 og stendur í tvær klukkustundir.  Húsið opnar kl. 19:30.
  • 02.06.2010

    Vefsíða: Betri Reykjavík

    Nýr vefsíða fyrir borgarbúa í Reykjavík til að setja fram hugmyndir sem eiga erindi við meirihlutaviðræður Besta flokksins og Samfylkingarinnar, á slóðinni www.betrireykjavik.is þar sem fólki gefst kostur á að setja inn hgumyndir til komandi borgarstjórnar um hvernig megi bæta borgina.Þar er hægt að kjósa með eða á móti þeim hugmyndum sem fram koma og færa rök fyrir máli sínu.
  • 31.05.2010

    Kosningar til stjórnar á aðalfundinum

    Heiðdís Dögg Eiríksdóttir var endurkjörin formaður Félags heyrnarlausra til eins árs á aðalfundi félagsins á laugardaginn var. Heiðdís var ein í framboði og hlaut einróma kosningu á fundinum. Guðmundur Ingason hlaut einróma kosningu í embætti varaformanns til tveggja ára, en hann var einn í framboði.  Hjördís Anna Haraldsdóttir og Gunnar Björn Jónsson hlutu kosningu í meðstjórn á aðalfundinum.  
  • 28.05.2010

    Aðalfundur Félags heyrnarlausra

    Aðalfundur Félags heyrnarlausra verður haldinn á morgun, laugardaginn 29. maí 2010 í Félagi heyrnarlausra á Grensásvegi 50.   Fundurinn hefst kl. 10 stundvíslega. 
  • 27.05.2010

    Döffmót 2010: Verðskrá



  • 27.05.2010

    Döffmót 2010: Skráning




  • 27.05.2010

    Leigubílaþjónusta fyrir Döff

    Hægt er að taka leigubíl þar sem bílstjóri kann táknmál.  Rúnar Vilhjálmsson býður Döff upp á leigubílaþjónustu
  • 26.05.2010

    Aðalfundur Íþróttafélags heyrnarlausra

    Aðalfundur Íþróttafélags heyrnarlausra (ÍFH) verður haldinn miðvikudaginn 9. júní kl. 19:00. Fundurinn verður haldinn í Félagi heyrnarlausra, Grensásvegi 50.
  • 26.05.2010

    Döffmót 2010: Dagskrá

     
  • 26.05.2010

    Myndsímatúlkun sumaropnun frá 1. júní til 15. ágúst 2010

    Myndsímatúlkun er opin á eftirfarandi tímum í sumar:

    Mánudaga og miðvikudaga kl 9:00-13:00
    Þriðjudaga og fimmtudaga kl 12:00-16:00
    Föstudaga er lokað í sumar.
  • 20.05.2010

    Við erum flutt

    Félag heyrnarlausra hefur flutt starfsemi sína á Grensásveg 50, 3. hæð. Símanúmerið er óbreytt, 561 3560 og faxnúmer 551 3560 er óbreytt. Netföng starfsmanna eru óbreytt.
  • 18.05.2010

    Frumvarp um fullgildingu samnings SÞ um réttindi fatlaðra

    Gerð frumvarps um fullgildingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks er í vinnslu og er ábendinga óskað.
  • 11.05.2010

    Sýning Hermanns og Halldórs í Grensáskirkju

    Opnun sýningar Hermanns Birgis Guðjónssonar og Halldórs Viðars Garðarssonar verður á uppstigningardag, fimmtudaginn 13. maí kl. 14:00 í Grensáskirkju.
    Fréttin er á táknmáli
  • 11.05.2010

    Félag heyrnarlausra á næstunni

    Nú fer að líða að flutningi í nýtt húsnæði Félags heyrnarlausra á Grensásveg 50.   Félag heyrnarlausra óska eftir sjálfboðaliðum við flutning. 
  • 07.05.2010

    Unnið er að endurbótun á nýju húsnæði félagsins

    Vinnan við nýja húsnæði félagsins er á fullu.   Á miðvikudaginn komu nokkrir félagsmenn til að aðstoða við vinnu í húsnæðinu.  
  • 05.05.2010

    Döff gengur til liðs við kvennalið FH í knattspyrnu

    Ana Rita Andrade Gomes hefur gengið til liðs við kvennalið FH í knattspyrnu. Ana Rita er heyrnarlaus og er frá Portúgal.
  • 05.05.2010

    Fréttablaðið: Tæknilegir örðugleikar

    Theodór Kjartansson laganemi við HÍ skrifaði grein í Fréttablaðinu 22. apríl sl., þar sem hann telur að skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis um hrun bankanna og öll kynning á henni eigi að vera aðgengileg öllum þjóðfélagshópum eins og Döff.  
  • 05.05.2010

    Fréttablaðið: Viljum jafnfræði í samfélaginu

    Í tilefni hálfrar aldar starfsafmæli Félags heyrnarlausra var tekið viðtal við Heiðdís Dögg Eiríksdóttur formann félagsins í Fréttablaðinu. 
  • 05.05.2010

    Upplýsingar um sanngirnisbætur

    Til að upplýsa fólk þá er inni á Alþingi ennþá í meðferð frumvarp um sanngirnisbætur. Frumvarpið á eftir að fara í gegnum 2. og 3. umræðu áður en það verður samþykkt.
  • 03.05.2010

    30 nemendur í kennaraskóla í Namibíu velja táknmál sem valgrein í námi sínu

    Á vefsíðu Þróunarsamvinnustofnun Íslands kemur fram að um þrjátíu nemendur í Kennaraskólanum í Windhoek, höfuðborg Namibíu, hafa valið táknmál sem valgrein í námi sínu við skólann.
  • 03.05.2010

    Döff- og fjölskyldumót 2010

    Döff- og fjölskyldumótið í sumar verður haldið 2. til 4. júlí næstkomandi í Þjórsárveri sem er ekki langt frá Selfossi og er í klukkutíma akstri frá Reykjavík.
  • 03.05.2010

    Vinnufundur í málefnum Döff á Kríunesi

    Vinnufundur var haldinn þann 15. apríl sl. á Kríunesi við Elliðavatn, þar sem leitast var við að ná sjónarmiðum og þátttöku 45 fulltrúa sem flestra sem hafa reynslu og þekkingu á málefnum heyrnarlausra og heyrnarskertra
  • 03.05.2010

    Fjórði Döff þingmaður í Evrópu

    Dr. Gergely Tapolczai er nýlega orðinn fjórði Döff þingmaðurinn í Evrópu.  Flokkurinn hans er með meirihluta í nýkjörna ungverska þingsins. 
  • 30.04.2010

    Skráning á norrænu menningarhátíðina er hafin!

    Opnað hefur verið fyrir skráningu á norrænu menningarhátíðina í Svíþjóð. Nú er hægt að skrá sig á heimasíðu menningarhátíðar. 
  • 29.04.2010

    Félag heyrnarlausra hefur samið um leigu á nýju húsnæði félagsins

    Stjórn Félag heyrnarlausra hefur samið um leigu á nýju húsnæði félagsins. Nýja húsnæðið er að Grensásvegi 50. Upplýst verður síðar um formlega opnun.
  • 29.04.2010

    Dagskrá Kirkju heyrnarlausra í maí 2010

    Dagskrá fyrir Kirkju heyrnarlausra fyrir maí mánuð hefur nú verið sett á netið.
  • 26.04.2010

    Sumarhús til leigu fyrir félagsmenn í sumar

    Á Grímsstöðum í Álftaneshreppi Mýrum í Borgarfirði hefur Félag heyrnarlausra tekið á leigu eitt til tvö sumarhús.   Húsin er leigt til félagsmanna frá 28. maí til 3. september 2010.
  • 23.04.2010

    Kirkjuferð til Keflavíkur

    Það verður fjölskyldumessa í Keflavíkurkirkju hjá sr. Skúla Ólafssyni og söfnuði sunnudaginn 2. maí kl. 11:00.   Rútan fer frá Grensáskirkju kl. 9.45.
    Fréttin er á táknmáli
  • 21.04.2010

    Hlaupið til góðs fyrir Félag heyrnarlausra

    Í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka 2010 er hægt að hlaupa til góðs.  Eins og undanfarin ár geta hlauparar hlaupið fyrir hin ýmsu góðgerðafélög og látið vini og velgjörðamenn heita á sig.
  • 21.04.2010

    Ferð aldraðra á Gvendarbrunnar

    Hópur aldraðra Döff fór í heimasókn á Gvendarbrunnar í Heiðmörk í gær 20. apríl.  Þrettán manns fór í heimsókn á Gvendarbrunnar ásamt tveimur táknmálstúlkum. 
  • 16.04.2010

    Norræn unglingamót heyrnarlausra á Íslandi 23. til 29. júlí 2010

    Norræn unglingamót heyrnarlausra verður haldið á Hvolsvelli dagana 23. til 29. júlí 2009. Mótið er fyrir 13 til 17 ára.
  • 16.04.2010

    Heimsókn aldraðra í Jónshúsið

    Hópur aldraðra heyrnarlausra fór í heimsókn í Jónshúsið í Strikinu 6 í Garðabæ þann 6. apríl síðastliðið.  Vel var tekið á móti hópnum.
  • 16.04.2010

    Upplýsingar um frumvarp um sanngirnisbætur á táknmáli

    Frumvarp til laga um sanngirnisbætur sem forsætisráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir hefur lagt fram á Alþingi fyrir nokkrum dögum er útskýrð á táknmáli. 
  • 16.04.2010

    Fyrirlestur á sunnudaginn

    Sunnudaginn 18.apríl kl. 20 koma hjónin Judy og James Shephard-Kegl í Félag heyrnarlausra. Þau eru stödd hér á landi til að taka þátt í ráðstefnu en hafa mikinn áhuga á að hitta fólk úr samfélagi heyrnarlausra hér á landi þar sem þau hafa starfað með heyrnarlausum í mörg ár. Á sunnudag munu þau halda fyrirlestra og taka þátt í umræðum á eftir. Allt verður að sjálfsögðu táknmálstúlkað.
  • 14.04.2010

    Fréttir af gosinu verði túlkaðir í kvöld

    Félag heyrnarlausra vill koma á framfæri að ítrekað hefur verið haft samband við RÚV vegna túlkunar í fréttatíma sjónvarps kl. 19:00 í kvöld. Fréttastjóri RÚV hefur svarað og ákveðið að fréttir af gosinu verði túlkaðar í aðalfréttatíma sjónvarps í kvöld kl. 19:00.
  • 13.04.2010

    ÖBÍ mótmælir skort á táknmálstúlkun í sjónvarpi

    Öryrkjabandalag Íslands hefur mótmælt harðlega til RÚV fyrir þeirri alvarlegu og grófu mismunun sem kemur fram í því að túlka ekki blaðamannafundi rannsóknarnefndar Alþingis. Stór hópur þeirra sem greiða nefskatt fyrir RUV heyrir ekki eða mjög illa. Þessum hópi nýtist ekki hljóðvarp en treysta á sjónvarpið textað og/eða með táknmálstúlk.
  • 13.04.2010

    Auglýsing frá Litlu Puttalingunum

    Litlu Puttalingar ætla að hittast 17. apríl nk.
  • 12.04.2010

    Ekki verður túlkur í fréttatíma sjónvarps í kvöld

    Fréttastjóri RÚV Óðinn Jónsson hefur tilkynnt Félagi heyrnarlausra að ekki verði túlkur í fréttatíma sjónvarps í kvöld kl. 19.30 í umfjöllun um niðurstöður rannsóknanefndarinnar á bankahruninu.
  • 12.04.2010

    Fréttaskýringaþættir Táknsmiðjuna um skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis

    Táknsmiðjan mun gefa út fréttaskýringaþættir á táknmáli um skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis um fall bankanna sem verður birt á heimasíðu Táknsmiðjuna. 
  • 12.04.2010

    Ekki var táknmálstúlkur í beinni útsendingu

    Blaðamannafundur Rannsóknarnefndar Alþingis hófst í Iðnó í morgun klukkan hálfellefu.  Þá var RÚV með beina útsendingu.  Ekki var táknmálstúlkur í útsendingunni eins og við óskuðum eftir hjá RÚV.
  • 07.04.2010

    Kynningafundur vegna sanngirnisbóta

    Kynningafundur vegna frumvarps um sanngirnisbætur verður haldinn í Félagi heyrnarlausra mánudaginn 12. apríl kl. 18.30.
  • 31.03.2010

    Kosningavefur um sveitastjórnarkosningar á táknmáli

    Upplýsingar um sveitarstjórnarkosningar sem verða haldnar laugardaginn 29. maí 2010 er á táknmáli á kosningarvef dómsmála- og mannréttindamálaráðuneytis. 
  • 31.03.2010

    Döff heilsugæsla

    Heiðdís Dögg Eiríksdóttir hjúkrunarfræðingur starfar á Heilsugæslustöðinni í Glæsibæ þar sem hún sinnir heilsugæslu- og hjúkrunarstörfum á vegum Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins fyrir heyrnarlausa.  Táknsmiðjan ehf. tók viðtal við Heiðdís. 
  • 31.03.2010

    Forseti Íslands bauð hóp aldraðra heyrnarlausa á Bessastaðir

    Þriðjudaginn 23.mars s.l. var hóp aldraðra heyrnarlausa boðið í formlega heimsókn til forseta Íslands á Bessastöðum. 
  • 29.03.2010

    Dagskrá Kirkju heyrnarlausra í apríl 2010

    Dagskrá fyrir Kirkju heyrnarlausra fyrir apríl mánuð hefur nú verið sett á netið.
  • 26.03.2010

    Norræn Menningarhátíð heyrnarlausra í Svíþjóð í sumar

    Norræn Menningarhátíð heyrnarlausra verður haldið í Stokkhólmi í Svíþjóð 28. júní – 3. júlí í sumar. Þema hátíðarinnar verður “Táknmál, framboð og aðgengi”.
  • 26.03.2010

    Deaf Arts Now - listahátíðin 2010

    Dagana 1. - 3. júlí verður Deaf Arts Now listahátíðin haldin í Stokkhólmi í Svíþjóð. Listahátíðin er í nánu samstarfi við Norræna menningarhátíð heyrnarlausra sem haldin verður á sama stað í sömu viku. 
  • 26.03.2010

    Heimsþing heyrnarlausra WFD í Suður Afríku 2011

    16. Heimsþing Alheimssamtaka heyrnarlausra (WFD) verður haldin í Durban í Suður Afríku, 18. til 24. júlí 2011. Búið er að setja upp heimasíðu heimsþingsins. Þar eru upplýsingar á ensku.
  • 25.03.2010

    Frumvarp um sanngirnisbætur á Alþingi

    Umræður fóru fram í dag á Alþingi um sanngirnisbætur til handa fórnarlömbum. Önnur og þriðja umræða um frumvarpið fer fram síðar. Félag heyrnarlausra mun boða til fjöldaþátttöku döff á palla Alþingis þegar síðari umræður fara fram.
  • 25.03.2010

    Sala vorhappdrættismiða Félags heyrnarlausra hafin

    Um þessar mundir stendur Félag heyrnarlausra fyrir sölu happdrættismiða um allt land.   Félagið fjármagnar starfssemi sína að langmestu leyti með sjálfsaflafé. 
  • 24.03.2010

    Vertu aðdáandi Félags heyrnarlausra á Facebook!

    Félag heyrnarlausra er með síðu á samskiptavefnum Facebook. Á síðunni er tæplega 500 aðdáendur. Endilega bætið okkur á síðuna og hvetja aðra til að gerast aðdáandi á síðuna.
  • 24.03.2010

    Táknmálsnámskeið fyrir almenning

    Þann 12. apríl hefst grunnnámskeið í táknmáli fyrir almenning á SHH.  Námskeiðið er 20 kennslustundir og kenndar eru tvær kennslustundir í senn, tvisvar í viku. Kennt verður mánudaga og miðvikudaga kl. 17.30 - 18.50.
  • 19.03.2010

    Tilkynning

    Laila Arnþórsdóttir verður ekki í Félagi heyrnarlausra næstu sjö mánudaga.
    Við viljum minna fólk á að panta tíma hjá Lailu eða Valdísi.
  • 17.03.2010

    Félag heyrnarlausra á textavarpinu

    Félag heyrnarlausra hefur haft síður 260-279 til afnota í textavarpi Sjónvarpins.  Nýlega voru síðurnar endurskipulagðar og eru nú aðgengilegri.
  • 17.03.2010

    Merki MP Banka á táknmáli

    MP banki sem styrkti Félag heyrnarlausra um tvær milljónir króna í tilefni af 50 ára afmæli Félags heyrnarlausra hefur birt nafn bankans á táknmáli á forsíðu sinni.    Þetta nafn var búið til að stjórnarmönnum Félags heyrnarlausra sem þakklætisvottur fyrir stuðning bankans við Félag heyrnarlausra.
  • 15.03.2010

    Laila M. Arnþórsdóttir tilnefnd til samfélagsverðlauna Fréttablaðsins

    Í síðustu viku var Laila M. Arnþórsdóttir fræðslufulltrúi Félags heyrnarlausra tilnefnd til samfélags verðlauna í flokkinum “Frá kynslóð til kynslóða”.  Tinna táknmálsálfur er byggður á leikriti eftir Lailu sem hefur birst í Stundinni okkar í vetur. Tinna táknmálsálfur talar táknmál, en þættir eru túlkaðir og tileinkaðir heyrnarlausum börnum og eru samtals átta þættir. 
  • 15.03.2010

    Rætt um fullgildingu sáttmálans SÞ um réttindi fatlaðra á ríkisstjórnarfundi

    Árni Páll Árnason, félags- og tryggingamálaráðherra, kynnti á fundi ríkisstjórnarinnar á föstudaginn var tillögur nefndar sem fjallað hefur um fyrirhugaða fullgildingu Íslands á samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fólks með fötlun.
  • 12.03.2010

    Frumvarp um bætur vegna illrar meðferðar

    Forsætisráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir kynnti frumvarp til laga um sem ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun til þeirra sem orðið hafa fyrir varanlegum skaða af illri meðferð eða ofbeldi á ákveðnum heimilum og stofnunum fyrir börn, m.a. Heyrnleysingjaskólanum.
  • 11.03.2010

    Heimspeki á táknmáli í Háskóla Íslands

    Student.is tók nýlega viðtal við Árna Inga Jóhannesson.  Árni er heyrnarlaus nemandi við Háskóla Íslands.  Hann er að læra heimspeki og táknmálsfræði.    Árni benti á að ef fólk vilja skilja heyrnarlausa til fulls þá myndi hjálpa þá að læra táknmál sem er lykillinn að menningu heyrnarlausra.  
  • 11.03.2010

    Saumastofa Landspítalans hlýtur viðurkenningu Félags heyrnarlausra

    Saumastofa Landspítalans hefur fengið viðurkenningu Félags heyrnarlausra sem veitt er fyrirtækjum eða stofnunum sem skara fram úr í viðhorfi og góðu viðmóti við heyrnarlausa. Styttan sem er farandbikar og færist á milli fyrirtækja kallast Múrbrjóturinn.
  • 10.03.2010

    Ókeypis túlkaþjónusta hjá túlkanemum Háskóla Íslands

    Vikuna 15. - 19. mars bjóða túlkanemar í Háskóla Íslands upp á ókeypis túlkaþjónustu.  Markmiðið er að túlkanemarnir fái þjálfun á vettvangi. Tekið er fram að þetta eru nemar en ekki útskrifaðir túlkar. Endilega nýtið ykkur þessa þjónustu.
  • 05.03.2010

    Döffpúlsinn í vor

    Félagsmenn geta komið skoðunum sínum á hinum ýmsum málum til stjórnar Félags heyrnarlausra.   Verður þá einn úr stjórninni í Félagi heyrnarlausra milli kl. 14:00 - 15:30.   Stjórnin gerir þetta til að reyna að auka gegnsæi og aðgang félagsmanna að stjórninni.  Hægt er að koma skoðun sinni á framfæri hvort hún er jákvæð eða neikvæð. 
  • 04.03.2010

    Vefsíðan thjodaratkvaedi.is á táknmáli

    Vefsíðan thjodaratkvaedi.is hefur verið opnuð í tilefni af þjóðaratkvæðagreiðslunni 6. mars um lög nr. 1/2010. Þar eru útskýrð á hlutlausan hátt meginatriði máls sem varða atkvæðagreiðsluna, ástæður hennar og mögulegar afleiðingar.
    Fréttin er á táknmáli
  • 03.03.2010

    Puttalingar með nýja heimasíðu

    Puttalingar eru komnir með eigin heimasíðu sem var opnuð í dag. Vefslóðin er www.puttalingar.is.
  • 03.03.2010

    Reykjavíkurborg veitti styrk til túlkaþjónustu SHH

    Velferðaráð Reykjavíkur úthlutaði í gær styrkjum.  Fanney frá SHH tók við styrk til túlkaþjónustunnar SHH.   Styrkurinn er notaður til að túlka viðburði sem Reykjavíkurborg stendur fyrir eins og til dæmis Menningarnótt og þegar jólatréið frá Norðmönnum er tendrað í desember. 
  • 24.02.2010

    Kynning á Þjónustu- & þekkingarmiðstöð blindra og sjónskertra

    Guðný Katrín Einarsdóttir daufblindraráðgjafi í Þjónustu- & þekkingarmiðstöð blindra og sjónskertra verður með kynningu á starfseminni föstudaginn 26. febrúar kl. 14:30 í Félagi heyrnarlausra.
  • 24.02.2010

    Kynningafundur um starf Framkvæmdanefndar í málefnum heyrnarlausra

    Júlía Hreinsdóttir og Sigurlín Margrét Sigðurðardóttir sem sitja í vinnuhóp utan um fulltrúa Félags heyrnarlausra í Framkvæmdanefnd sem skipuð var af forsætisráðuneytinu til að vinna í málefnum heyrnarlausra, efna til kynningafundar meðal félagsmanna um starfsemi vinnuhópsins. Júlía og Magga vilja hvetja félagsmenn til að mæta og hlusta á kynninguna og taka virkan þátt í starfi nefndarinnar með hugmyndum og tillögum.

    Fundurinn verður í FH miðvikudaginn 3. mars kl. 20.00


  • 22.02.2010

    Táknmálsbækur á vef Námsgagnastofnunar

    Í síðustu viku opnaði nýr vefur Námsgagnastofnunar þar sem 11 bækur hafa verið túlkaðar yfir á táknmál.
  • 17.02.2010

    Verkefni Félags heyrnarlausra á næstunni

    Nú þegar vel heppnuð afmælishátíð Félags heyrnarlausra er yfirstaðin þá er gott að upplýsa um þau mál sem bíða stjórnar og starfsfólks FH á komandi vikum og mánuðum.
  • 12.02.2010

    Málþing og Galakvöld - morgun

    Við minnum á málþingið sem fer fram á morgun í Salnum í Kópavogi. Málþingið hefst kl. 9:00 og stendur til kl. 15:00 en húsið opnar kl. 8:30. Við hvetjum alla til að mæta. Aðgangur er ókeypis.
  • 12.02.2010

    Frá opnunarhátíðinni 11. febrúar

    Opnunarhátíð 50 ára afmælis Félags heyrnarlausra fór fram í Víkingasal Hótels Loftleiða í gær. Margt var um manninn og tókst hátíðin í alla staði mjög vel.
  • 12.02.2010

    Leikritið Borð fyrir tvo í kvöld, 12. feb

    Þeir sem bókað hafa mat fyrir leiksýninguna "Borð fyrir tvo" í kvöld eru beðnir að mæta upp úr kl. 18:00. Aðrir gestir sem ætla eingöngu að horfa á leikritið eru vinsamlegast beðnir um að mæta eigi síðar en kl. 20:20
  • 11.02.2010

    Dagskrá Kirkju heyrnarlausra

    Dagskrá Kirkju heyrnarlausra fyrir febrúar hefur nú verið sett inn á netið.
    Hægt er að nálgast dagskránna hér.
  • 11.02.2010

    Til hamingju með daginn

    Í dag, fimmtudaginn 11. febrúar fagnar Félag heyrnarlausra 50 ára afmæli sínu.
    Starfsfólk skrifstofunnar óskar félagsmönnum til hamingju með daginn og minnum á opnunarhátíðina í Víkingasal Hótels Loftleiða í dag kl. 16:00
  • 10.02.2010

    Opnunartími Félags heyrnarlausra yfir afmælishátíðina

    Félag heyrnarlausra verður opið frá kl. 9 - 14:30 á morgun, fimmtudag 11. febrúar. Verður félagsmönnum boðið upp á kaffi og konfekt. Eftir kl. 14:30 verður félagið lokað vegna afmælishátíðar á Hótel Loftleiðum kl. 16:00
    Föstudaginn 12. febrúar verður félagið opið eins og venjulega kl. 9:00 - 16:00


  • 09.02.2010

    Kynning á myndlistar - og sögusýningunni

    Fimmtudaginn 11. febrúar opnar kl. 11 myndlistar- og sögusýning í Ráðhúsi Reykjavíkur.
    Fréttin er á táknmáli
  • 09.02.2010

    Kynning á leikritinu á Sólon

    Leikritið "Borð fyrir tvo" verður sýnt kl. 20:30 á Sólon 2. hæð föstudaginn 12. febrúar.
    Fréttin er á táknmáli
  • 09.02.2010

    Matseðill Sólon

    Matseðill Sólon fyrir föstudagskvöldið er nú kominn á netið.

    Hægt er að nálgast hann hér eða með að fara í atburðardagatalið og velja hann þar.
  • 09.02.2010

    Kynning á málþinginu í Salnum í Kópavogi

    Málþing verður haldið frá kl. 9:00 - 15:00 laugardaginn 13. febrúar í Salnum í Kópavogi. Efni málþingsins er Samningur SÞ um réttindi fatlaðra.

    Dagskrá fundarins er hægt að sjá hér.
    Fréttin er á táknmáli

Um félagið

Þú ert hér: Forsíða or Um félagið or Tilkynningar
Byggir á Summit vefstýrikerfinu frá IGM ehf. www.igm.is