Döffpúlsinn í vor
Félagsmenn geta komið skoðunum sínum á hinum ýmsum málum til stjórnar Félags heyrnarlausra. Verður þá einn úr stjórninni í Félagi heyrnarlausra milli kl. 14:00 - 15:30. Stjórnin gerir þetta til að reyna að auka gegnsæi og aðgang félagsmanna að stjórninni. Hægt er að koma skoðun sinni á framfæri hvort hún er jákvæð eða neikvæð.
Næstu spjallfundir:- 12. mars - Heiðdís Dögg
- 19. mars - Guðmundur
- 9. apríl - Heiðdís Dögg
- 23. apríl - Guðmundur
- 7. maí - Heiðdís Dögg
- 21. maí - Guðmundur
- 28. maí - Heiðdís Dögg
Endilega nýtið ykkur tækifærin.
Þarf ekki að panta tíma.
Allir félagsmenn eru velkomnir.