Táknmálsnámskeið fyrir almenning
12. apríl hefst grunnnámskeið í táknmáli fyrir almenning á SHH. Námskeiðið er 20 kennslustundir og kenndar eru tvær kennslustundir í senn, tvisvar í viku. Kennt verður mánudaga og miðvikudaga kl. 17.30 - 18.50.
Verð: 16.640 krónur
Úr námskeiðslýsingu:
Nemendur læra að kynna sig, spyrja og svara einföldum spurningum, gefa einföld fyrirmæli og lýsa fötum og athöfnum. Þeir læra nöfn mánaða og vikudaga auk þess að segja til um hvað klukkan er. Þeir læra að tala um nánasta umhverfi sitt og eiga að geta stafað stutt nöfn eftir námskeiðið.
Hægt er að skrá sig með tölvupósti
anney@shh.is, eða hringja í síma 562-7702.