Sumarhús til leigu fyrir félagsmenn í sumar
Á Grímsstöðum í Álftaneshreppi Mýrum í Borgarfirði hefur Félag heyrnarlausra tekið á leigu eitt til tvö sumarhús. Húsin er leigt til félagsmanna frá 28. maí til 3. september 2010.
Helstu upplýsingar um húsin: Í hvoru húsi eru 3 svefnherbergi, í einu herbergi er koja og í tveimur herbergjum eru tvíbreið rúm með efri koju alls fyrir 8 manns. Ennfremur setustofa með eldhúskrók og salerni með sturtu. Húsin eru vel útbúin þar sem m.a. er sjónvarp, DVD í hverju húsi, ásamt heitum nuddpotti. Gasgrill er við húsin.

Leiðarlýsing og fjarlægð frá Reykjavík:Grímsstaðir er í Álftaneshreppi Mýrum og er staðsettur um 20 km vestur af Borgarnesi. Bústaðirnir standa undir Grímsstaðamúla í fallegu kjarrvöxnu umhverfi og
er gott útsýni yfir sveitina. Fjarlægð frá Reykjavík er 91 km.
Staðsetning á
korti
Komu- og brottfarartímar: Á sumrin eru inn föstudaga kl. 16:00 og út viku síðar kl. 12:00 á hádegi.
Lyklar:Lykill afhendist á skrifstofu Félags heyrnarlausra og skilist þangað að dvöl lokinni.
Umsjón:Umsjónaraðilar með húsin er sumarbústaðarnefnd félagsins. Í húsinu verða upplýsingar hvernig má hafa samband við umsjónaraðila ef eitthvað fer úrskeiðis.
Verð: Sumarhúsið er leigt viku í senn, frá föstudegi til föstudags, kr. 20.000.-
Umsókn um sumarhús: Sækja þarf um sumarhús í síðasta lagi 5. maí.
Umsóknareyðublöð er hægt að nálgast hér:
Sumarbústaðarnefnd:Rúnar Ingólfsson, formaður
Haukur Vilhjálmsson
Uldis Ozols