30 nemendur í kennaraskóla í Namibíu velja táknmál sem valgrein í námi sínu
Á vefsíðu Þróunarsamvinnustofnun Íslands kemur fram að um þrjátíu
nemendur í Kennaraskólanum í Windhoek, höfuðborg Namibíu,
hafa valið táknmál sem valgrein í námi sínu við skólann.
Boðið var í fyrsta sinn á síðasta ári upp á þennan möguleika í kennaraskólanum. Stærsta verkefni Þróunarsamvinnustofnun Íslands í Namibíu er á sviði menntunar fyrir heyrnarlausa.
Tvær konur frá skólanum voru hér á landi og heimsóttu m.a. Félag heyrnarlausra. Þær kynntu sér táknmálsnám á Íslandi undir leiðsögn starfsmanna Samskiptamiðstöðvar heyrnarlausra og heyrnarskertra
- Hér er hægt að lesa fréttina á heimasíðu Þróunarsamvinnustofnun Íslands.