Fréttablaðið: Viljum jafnfræði í samfélaginu
Í tilefni hálfrar aldar starfsafmæli Félags heyrnarlausra var tekið viðtal við Heiðdís Dögg Eiríksdóttur formann félagsins í Fréttablaðinu.
Heiðdís sagði í viðtalinu að "eitt helsta baráttumál heyrnarlausra er að tryggja betur aðgengi okkar að samfélaginu. Við höfum til dæmis lítið sem ekkert aðgengi að sjónvarpsefni og förum því oft á mis við mikilvægar upplýsingar. Það eru til dæmis miklar umræður um rannsóknarskýrsluna og eldgosið núna, en allt er þetta okkur lokað. Helst að við fáum fréttirnar hraðsoðnar á fimm mínútum á dag. Bæta þarf úr þessu og viðurkenna okkur og málið. Eða eins og einn heyrnarlaus sagði þá er málið lykillinn að menningu heyrnarlausra í samfélaginu."