Frumvarp um fullgildingu samnings SÞ um réttindi fatlaðra
Gerð frumvarps um fullgildingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks er í vinnslu og er ábendinga óskað.
Nefnd um fullgildingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks hefur skilað tillögum til Árna Páls Árnasonar félags- og tryggingamálaráðherra.
Félags- og tryggingamálaráðuneytið veitir áhugasömum tækifæri til að skila inna athugasemdum til ráðuneytisins fyrir 22. maí nk. Fyrirliggjandi tillögur nefndarinnar og framkomnar athugasemdir verða síðan notaðar við gerð frumvarps vegna fyrirhugaðrar fullgildingar samningsins en stefnt er að því að leggja frumvarpið fyrir núna í haust 2010.
Félag heyrnarlausra vinnur nú að samantekt með athugasemdum sem innleg í frumvarpsgerðin og þiggur allar góðar ábendinga frá félagsmönnum. Það er líka hægt að senda athugasemdir beint á félags- og tryggingamálaráðuneytið.