Konukvöld í Félagi heyrnarlausra
Sigríður Arnarsdóttir, Sirrý kmeur í heimsókn og verður með fyrirlestur fyrir Döff konur, miðvikudaginn 16. júní 2010 í Félagi heyrnarlausra á Grensásvegi 50. Námskeiðið hefst kl. 20 og stendur í tvær klukkustundir. Húsið opnar kl. 19:30.
Sigríður Arnarsdóttir, Sirrý (
www.sirry.is) kemur í heimsókn og verður með fyrirlestur sem heitir „
FYLLTU Á TANKINN Í SUMAR".
Fyrirlestur og hópverkefni um það sem við getum gert til að auka orkuna, hlaða batteríin og njóta lífsins, styrkja okkur og efla - og kostar lítið sem ekkert. Þjálfun í samskiptafærni, öruggri tjáningu, að láta óskir sínar rætast. Rætt um hæfilegt daður og hressandi hrós.Hressandi fyrirlestur og frískandi verkefni fyrir þá sem vilja byggja sig upp og njóta lífsins þrátt fyrir mótbyr.
Hópastarf og happdrætti sem kryddar tilveruna og styrkir ónæmiskerfið.
Allar döff konur hvattar til að mæta og hvetja aðra til að mæta.
Námskeiðskostnaður er
kr. 1.000,- (taka með pening á staðinn, ekki debet/kreditkort).
Táknmálstúlkar á staðnum.
Fimmtudagskvöldið 16. júní frá kl. 20.00-22.00 (kannski aðeins lengur ef konur eru í stuði).
Félagsheimili FH, Grensásvegi 50, 3.hæð.
Taka með sér skæri.
Hlakka til að sjá ykkur allar hressar!
Ef einhverjar spurningar vakna um námskeiðið þá tala við Möggu, tölvupóstur:
smaggas@simnet.is og gsm: 8630664.