Þú ert hér

Söfnun gagna um íslenska táknmálið
Rannsóknir á íslenska táknmálinu eru mikilvægar fyrir marga hluta sakir. Rannsóknir eru undirstaða allrar kennslu og námsefnisgerðar í íslenska táknmálinu en þær eru líka nauðsynlegar ef móta á málstefnu eða segja fyrir um hvernig nota á málið. Ef við vitum hvernig málið er notað vitum við líka hvernig best er að kenna það. Þannig geta rannsóknir stutt baráttu döff fyrir viðurkenningu á íslenska táknmálinu og því að fá táknmálið viðurkennt sem móðurmál döff. Til að rannsóknir geti farið fram þarf að afla gagna um málið, þ.e. taka upp efni þar sem döff tala íslenskt táknmál. Í sumar vinna tveir döff, Árni Ingi Jóhannesson og Steinunn L. Þorvaldsdóttir að því að safna táknmálsefni. Þetta efni verður svo notað í margvíslegum rannsóknum við Háskóla Íslands og á SHH. Eins og önnur tungumál er íslenska táknmálið fjölbreytt og margbreytilegt og engir tveir tala nákvæmlega eins. Til að við getum séð þetta er mikilvægt að fá sem breiðastan hóp táknara. Vonandi vilja sem flestir leggja málefninu lið og tala í nokkrar mínútur við Árna og Steinunni. Með kveðju,Rannveig SverrisdóttirHáskóla Íslands

Um félagið

Þú ert hér: Forsíða or Um félagið or Tilkynningar or Lesa
Byggir á Summit vefstýrikerfinu frá IGM ehf. www.igm.is