Þú ert hér

Fyrirlestur um táknmálsskilning heyrnarlausra

Miðvikudaginn 30. júní kl.10:00-12:00 heldur Isabel de los Reyes Rodríguez Ortiz, Sálfræðideild Háskólans í Sevilla á Spáni, fyrirlestur sem nefnist Sign Language Comprehension in Deaf People eða Táknmálsskilningur heyrnarlausra. Fyrirlesturinn er haldinn á vegum spænskudeildar Háskóla Íslands og Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum og fer fram í Gimli, stofu 102.


Í fyrirlestrinum verður reynt að svara spurningunni um það hversu mikið heyrnarlausir nemendur skilja af því sem er táknmálstúlkað. Táknmálsskilningur heyrnarlausra er yfirleitt ágætur í þessum aðstæðum en ekki eins góður og hjá heyrandi táknurum. Litið er á áhrif aldurs og aðstæðna þegar táknmál er lært.


Fyrirlesturinn er haldinn á spænsku en verður túlkaður yfir á íslensku og íslenskt táknmál.


Um félagið

Þú ert hér: Forsíða or Um félagið or Tilkynningar or Lesa
Byggir á Summit vefstýrikerfinu frá IGM ehf. www.igm.is